
Doron F. Eliasen
Ég er fæddur 1944 í Fuglafirði í Færeyjum og er búin að búa á Íslandi síðan 1969 þegar ég varð ástfanginn af konunni minni, Ásbjörgu. Ég hef síðan eignast 4 börn og mörg barnabörn sem eru mér mjög kær. Ég byggði mér hús 1977 á Álftanesi í Garðabæ, þar hef búið og starfað síðan. Ég hef lengi haft áhuga á list og sköpun. Í gegnum árin hef ég skoðað og prófað mig áfram á sem flestum sviðum myndlistar. Árið 2010, hætti ég á vinnumarkaðinum og byrjaði að einbeita mér meira af listasmiðju. Þá gekk ég einnig í Grósku sem eru samtök myndlistamanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ. Mér finnst skemmtilegast að vinna í olíumálun en einnig finnst mér gaman að leika mér með blýantsteikningar, vatnsmálun og akrýl. Ég hef einnig verið að leiðbeina á nokkrum listmálunarnámskeiðum bæði í Kópavogi og í Reykjavík.
Helstu viðfangsefnin eru portrettmyndir, landslagsmyndir og uppstillingar.
Einkasýningar:
Júli 2015:
Ribarhús Gallerí, Fuglafirði, Færeyjar.
Mars 2017:
Bókasafn Garðabæjar, Garðabæ
Oktober 2019:
Bókasafn Garðabæjar, Garðabæ
Júní 2023:
Félagsmiðstöð Hvassaleiti 56-58, Reykjavík
Samsýningar:
Árlegar „Jónsmessu-sýningar á vegum Grósku myndlistarfélags“ frá 2010 til 2019.
Energia í Smáralind, Kópavogur.
Boðaþing, Kópavogur.
Gróskusal Garðatorgi 1, Garðabæ.